Um okkur

Vissir þú?


Að 9. janúar árið 1799, gekk mesta sjávarflóð sem sögur fara af hérlendis yfir suður-og vesturströnd Íslands. Þar fóru saman djúp lægð, mikið stórstreymi og afar óhagstæð vindátt. Verulegt eignatjón varð, tæplega 200 bátar urðu fyrir skemmdum, hundruð fjár fórust og kirkjurnar á Hvalsnesi og á Nesi við Seltjörn gjöreyðilögðust. Mest var þó tjónið á verslunarstaðnum Básendum á Stafnesi og hefur flóðið því verið kennt við þá.

UM OKKUR

Að Leiðsögumönnum Reykjaness ses. standa fimmtán útskrifaðir leiðsögumenn sem allir hafa víðtæka þekkingu á Reykjanesi.

Hópurinn stendur fyrir viðburðum og ferðum, miðlar fræðslu og fróðleik um svæðið í þeim tilgnangi að stuðla að aukinni kynningu á svæðinu á meðal fagfólks í ferðaþjónustu, íbúa, almennings og ferðamanna. Efla jákvæða ímynd svæðisins sem ferðamannastaðar fyrir erlenda og innlenda ferðamenn. Miðla sögu svæðisins til íbúa, almennings og ferðamanna. Selja ferðir um Reykjanes með faglegri leiðsögn útskrifaðra leiðsögumanna.